Um Bjórskólann

Kennsla fer fram öll fimmtudagskvöld frá
kl. 20.00 - 23.00 í nýjum húsakynnum Ölgerðarinnar

Bjórskólinn - þar sem enginn skrópar!

Nemendur Bjórskólans ferðast um undraheim bjórsins undir styrkri leiðsögn kennara okkar sem allir hafa hlotið vottun bruggmeistara Ölgerðarinnar. Námsefnið nær allt frá sögu bjórsins, bruggferlinu og ólíkum bjórtegundum til eiginleika bjórsins og bjórmenningar á Íslandi.

Í frímínútum heimsækja nemendur brugghús Ölgerðarinnar og upplifa af eigin raun hvernig bruggferlið fer fram. Jafnframt verður Borg brugghús heimsótt en þar fá nemendur bjórþefinn af því sem koma skal í heimi íslenskrar bjórmenningar. Nemendur okkar eru með þeim fyrstu til að smakka afurðir Borgar hverju sinni.

Í kennslustund smakka nemendur níu mismunandi bjórtegundir frá öllum heimshornum, ásamt öðrum fljótandi glaðningum. Að lokinni kennslu fá nemendur veglegt ítarefni sem minnkar þörfina á glósutöku til muna. Við útskrift fá nemendur sérstakt viðurkenningarskjal vottað af formanni skólanefndar.

Hver kennslustund stendur yfir í rúmar þrjár klukkustundir frá kl.20 öll fimmtudagskvöld. Hámarksfjöldi nemenda í almennri kennslu eru 20 manns. Hægt er að óska eftir einkakennslu á öðrum tíma fyrir hópa að lágmarki 15 manns og að hámarki 23 manns.

Viljum benda nýnemum á að mæta stundvíslega til kennslu. Nemendum er frjálst að hafa myndavél með í kennslustund.

Inntökuskilyrði:

  • Þótt ekki séu formleg próf í skólanum þurfa nemendur að innbyrða nokkuð af fjölbreyttu námsefni. Nemendur þurfa því að gera ráðstafanir varðandi heimferð að lokinni kennslustund
  • Ekki er mælst til að nemendur stundi heimanám fyrir kennslu. Brot á reglum getur leitt til brottvísunar úr kennslustund
  • Akstur og neysla áfengis eiga aldrei samleið!
  • 20 ára aldurstakmark