Smakkaðu þig í gegnum íslenskar drykkjarhefðir og sjáðu Íslendinga í nýju ljósi!
"Taste the Saga" AH150
Gestastofa Ölgerðarinnar er tilvalinn áfangastaður ef þig vantar nýstárlega og skemmtilega afþreyingu fyrir erlenda gesti. Drykkjarmenning Íslendinga verður ljóslifandi og aldagamlar brugghefðir í aðalhlutverki.
Gestirnir okkar drekka í sig menningararfinn í hverju glasi, fullu af fróðleik og skemmtilegum boðskap.
Þátttökugjald aðeins kr. 3900.
Innifalið: Rútuferðir til og frá Ölgerðinni, áfengir og óáfengir drykkir og ensk leiðsögn.








